Samfélagsmiðlar á mínum forsendum
Nýtt námskeið! Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir fólk með fötlun sem vill verða sjálfstæðara og öruggara í notkun samfélagsmiðla. Námskeiðið er þrjú skipti, 60 mínútur í senn.
Markhópur: Ungt fólk og fullorðnir með fötlun sem vilja nota meira samfélagsmiðla s.s. Instagram, Facebook og TikTok.
Markmið: Fræðsla og æfingar við að nota samfélagsmiðla til afþreyingar og tjáskipta á jákvæðan og öruggan hátt.
Efnistök verða valin að þörfum og áhuga þátttakenda til að mynda:
- Persónuverndarstillingar: Hvernig á að loka prófílum, velja hverjir sjá færslur og stjórna athugasemdum.
- Skapandi notkun: Hvernig á að búa til skemmtilegt en viðeigandi efni (t.d. stutt myndbönd eða sögur) með því að nota innbyggð tól miðlanna.
- Samskiptareglur á netinu: Hvað er viðeigandi efni og hvað ekki, og hvernig má bregðast við óviðeigandi áreiti.
Fámennur hópur og farið yfir hlutina á rólegum hraða þar sem allir fá aðstoð við að prófa sig áfram.
Námskeiðið fer fram á miðvikudögum kl. 14:00-15:00 dagana 4., 11. og 18. nóvember.
Leiðbeinandi: Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur
