Um TMF Tölvumiðstöð
Þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð sem sérhæfir sig í ráðgjöf um tæknilausnir fyrir fatlaða.
Hlutverk
Að efla virkni og samfélagsþátttöku með sérhæfðri ráðgjöf og fræðslu um stafrænar tæknilausnir.
Framtíðarsýn
Samfélag þar sem tæknin er nýtt til að jafna tækifæri til þátttöku og virkni
Gildi
Einstaklingsmiðuð þjónusta –
Fagmennska – Aðgengi fyrir alla.
Saga TMF
TMF Tölvumiðstöð, áður Tölvumiðstöð fatlaðra var stofnuð árið 1985. Frá upphafi hefur markmið TMF verið að auka aðgengi fatlaðra að upplýsingatækni. Í gegnum árin hefur starfsemin þróast og aðlagast hröðum tæknibreytingum og þjónar nú einstaklingum á öllum aldri, aðstandendum þeirra og fagfólki um allt land. Í dag sérhæfir TMF sig í ráðgjöf um tæknilausnir fyrir einstaklinga, heldur námskeið og skrifar fræðsluefni um hugbúnað og tækni sem auðveldar fólki aðgang að stafrænum heimi. Með útgáfu nýrrar heimasíðu TMF hefur nú verið sett fram upplýsingagátt þar sem hægt er að finna upplýsingar um helstu tæknilausnir og fræðast um notkun þeirra. Hægt er að lesa nánar um sögu TMF hér.

Stjórn TMF
Rósa María Hjörvar
Formaður stjórnar
Indriði Björnsson
Ritari
Baldur Snær Sigurðsson
Meðstjórnandi
Magnea Rut Ásgeirsdóttir
Meðstjórnandi
Starfsfólk
Viltu vita meira?
Hafðu samband við TMF — ráðgjöfin er ókeypis og opin öllum.