Markmið TMF er að styðja einstaklinga til að nýta tölvur og snjalltæki til að draga úr hindrunum í daglegu lífi. Með hagnýtingu upplýsingatækni og tæknilausna er hægt að efla sjálfstæði, færni og lífsgæði einstaklinga með sérþarfir, hvort sem er í námi, starfi eða tómstundum.
Saga og bakgrunnur
Saga TMF á rætur sínar að rekja til ársins 1984 þegar hópur aðstandenda hóf samtal um möguleika tölvutækninnar fyrir fatlað fólk. Formleg stofnun Tölvumiðstöðvar fatlaðra var 24. október 1985 en eiginleg starfsemi hófst í ársbyrjun 1987.
Í gegnum árin hefur starfsemin vaxið og þróast til að mæta hröðum tæknibreytingum. Árið 2004 flutti miðstöðin að Háaleitisbraut 13. Til að endurspegla betur þróun starfseminnar fékk miðstöðin nýtt nafn og merki árið 2013 og heitir í dag TMF Tölvumiðstöð, en TMF vísar til orðanna Tækni, Miðlun og Færni. Aðildarfélög og eigendur TMF í dag eru Blindrafélagið, Landssamtökin Þroskahjálp, Gló stuðningsfélag og ÖBÍ réttindasamtök.
Kjarnaþjónusta og starfsemi
TMF þjónar öllum aldurshópum en þjónustan er einnig opin fyrir fagaðila, skóla, stofnanir og aðstandendur. Starfsemin byggir á fjórum meginstoðum:
- Einstaklingsráðgjöf og prófun: Boðið er upp á ráðgjöf um þörf fyrir tölvubúnað og val á lausnum. Ráðgjöfin er einstaklingsmiðuð og fer fram í náinni samvinnu við aðstandendur og fagfólk í nærumhverfi notandans, þegar það á við.
- Fræðsla: TMF aðstoðar kennara, iðjuþjálfa, þroskaþjálfa og aðra fagaðila við að kynnast lausnum, hugbúnaði og forritum sem nýst geta tilteknum hópum.
- Námskeið: TMF heldur reglulega námskeið um ýmis efni sem eftirspurn er eftir.
Auk þessa, leitast TMF við að vera í góðu samstarfi við hagsmunaaðila og þá sem starfa við ráðgjöf og þróun tæknilausna.
Framtíðarsýn og sóknarfæri
Tækninýjungar eru sífellt að ryðja sér til rúms og horfir TMF björtum augum til framtíðar. Mikil tækifæri liggja í hagnýtingu á nýrri tækni, svo sem íslenskri máltækni og gervigreind, sem getur umbylt aðgengi fatlaðs fólks að upplýsingum og samskiptum. Tryggja þarf að tækninýjungarnar nýtist fólki með fötlun og að til staðar sé vettvangur til að prófa mismunandi lausnir og finna hvað henti hverjum og einum.
Á heimasíðu TMF hefur nú verið sett fram upplýsingagátt þar sem hægt er að finna upplýsingar um ýmsar tæknilausnir og fræðast um notkun þeirra. TMF mun jafnframt halda áfram að efla samstarf sitt við þróunaraðila, ofurnotendur og aðra hagaðila til að tryggja að stafrænar lausnir morgundagsins nýtist öllum til jafns.