Tölvan mætt og hvað svo?
Um námskeiðið: Stærsta áskorun tengt tjáskiptatækni er að gera að eðlilegum, virkum og skemmtilegum hluta af öllum deginum. Á þessu námskeiði er sjónum beint að umhverfinu og aðferðum til að byggja upp færni og frumkvæði til samskipta. Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að setja raunhæfar kröfur, vera fyrirmynd í tjáskiptum og styrkja tjáskiptafærni notandans.
Markhópur: Námskeiðið er ætlað kennurum og starfsfólki í kringum einstakling sem notar eða er að læra á tjáskiptaforrit, t.d. TD Snap. Þar á meðal
- Fagaðilum s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og talmeinafræðingum.
- Stuðningsfulltrúum í leik- og grunnskólum eða frístundastarfi
- Liðveitendum og öðrum umönnunaraðilum
Forkröfur: Gert er ráð fyrir að þátttakendur þekki grunninn á TD Snap eða séu í teymi þar sem tæknileg forritun er nú þegar í höndum annarra. ATHUGIÐ að þetta námskeið fjallar ekki um tæknilegar stillingar í forritinu.
Markmið: Í þessu námskeiði eiga þátttakendur að:
-
öðlast öryggi og færni í að nota tjáskiptatækni s.s. TD Snap, í samskiptum við notandann í rauntíma.
-
læra að skapa náttúruleg samskiptatækifæri í daglegum rútínum.
-
vita hvernig á að bregðast við höfnun og mótstöðu við tjáskiptalausn.
Helstu viðfangsefni:
-
Fyrirmynd og sýnikennsla (Modeling / Aided Language Input): Að tala með tækinu í stað þess að prófa eða spyrja notandann.
-
Kjarnaorð (Core Words): Hvernig við notum mikilvægustu samskiptaorðin í ólíkumstundum dagsins.
-
Tækifæri í rútínunni: Að breyta matartíma, leik, klæðnaði og frístund í samræðustundir.
-
Áskoranir og viðbrögð: Hvað gerum við þegar notandinn vill ekki nota tækið eða sýnir lítinn áhuga?
-
Samræming innan teymis: Að allir umhverfis notandann tali sama „tungumálið“ og beiti sömu aðferðum.
Fyrirkomulag:
-
Lengd: 3 klukkustundir (með kaffihléi).
-
Búnaður: Gott er að koma með spjaldtölvu með tjáskiptaforriti ef mögulegt er, en það er ekki skilyrði.
Leiðbeinandi: Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur
