Miðlun fyrir öll
Á þessu námskeiði verður farið yfir tvær af fjórum stoðum aðgengis; skynjanleika og skiljanleika. Hvað þarf að hafa í huga þegar verið er að birta upplýsingar á vefsvæðum eða í smáforritum svo þær nýtist sem flestum. Hvernig þarf að vinna upplýsingarnar og hvaða ferla þarf að styðjast við. Á námskeiðinu verður farið yfir vinnubrögð og rætt um góðar lausnir.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma að gerð, ritun eða umsjón efnis á vefjum og í smáforritum. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir vef- og efnisstjóra, textahöfunda, hönnuði og verkefnastjóra sem vilja öðlast hagnýta þekkingu á stafrænu aðgengi og læra réttu vinnubrögðin til þess að ná til sem flestra.
Leiðbeinandi: Rósa María Hjörvar, aðgengisfulltrúi ÖBÍ