Samfélagsmiðlar á mínum forsendum
Nýtt námskeið þar sem farið er yfir heim samfélagsmiðlanna. Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir fólk með fötlun sem vill verða sjálfstæðara og öruggara í stafræna heiminum.
Markhópur: Ungt fólk og fullorðnir með fötlun sem vilja nota TikTok, Instagram og Facebook.
Markmið: Fræðsla og æfingar við að nota samfélagsmiðla til afþreyingar og tjáskipta á jákvæðan og öruggan hátt.
Efnistök verða valin að þörfum og áhuga þátttakenda til að mynda:
- Persónuverndarstillingar: Hvernig á að loka prófílum, velja hverjir sjá færslur og stjórna athugasemdum.
- Skapandi notkun: Hvernig á að búa til skemmtilegt en viðeigandi efni (t.d. stutt myndbönd eða sögur) með því að nota innbyggð tól miðlanna.
- Samskiptareglur á netinu: Hvað er viðeigandi efni og hvað ekki, og hvernig má bregðast við óviðeigandi áreiti.
Fámennur hópur og farið yfir hlutina á rólegum hraða þar sem allir fá aðstoð við að prófa sig áfram.
Námskeiðið er 3 x 60 mín og fer fram á miðvikudögum kl. 14:00-15:00
Dags: 4. nóv, 11, nóv og 18. nóv