Tæknin sem bakhjarl: Stuðningur við nám, tjáningu og málþroska
Um námskeiðið: Nútímatækni býður upp á fjölbreyttar og aðgengilegar leiðir til að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Með því að þekkja og nýta tæknina rétt geta fagaðilar og aðstandendur dregið verulega úr þeim hindrunum sem fólk með lestrar- og tjáskiptaáskoranir mætir. Þá getur rétt nýting á innbyggðum lausnum og snjallforritum verið lykillinn að auknu sjálfstæði og vellíðan.
Markhópur: Sérkennarar, þroskaþjálfar, stuðningsfulltrúar, foreldrar og aðstandendur sem vilja nýta tæknina til að draga úr hindrunum í námi og hversdegi hjá einstaklingum með málþroskaröskun (DLD), eða aðrar áskoranir sem hamla námi.
Markmið: Að veita þátttakendum dýpri innsýn og hagnýta færni í notkun talgervingar og snjallforrita. Markmiðið er að læra hvernig tæknin eflir góða námstækni, eykur sjálfstæði og valdeflir nemendur til að verða virkir námsmenn.
Helstu viðfangsefni:
-
Talgervlar (Text-to-Speech) og talgreining (Speech-to-Text)
-
Einfaldað lestrarumhverfi og textavinnsla
-
Ljóslestur (OCR) í snjalltækjum
- Kynning á ýmsum forritum sem nýtast nemendum
Fyrirkomulag: Um er að ræða hagnýtt vinnustofunámskeið. Þátttakendur mæta með eigin tölvur og/eða snjalltæki (síma/spjaldtölvur) þar sem farið er dýpra í hvern þátt. Gefinn er tími til að setja upp viðbætur, breyta stillingum og prófa öll verkfærin á staðnum undir handleiðslu.
Leiðbeinandi: Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur