Snjallsíminn þinn – snjallari en þú heldur
Um námskeiðið: Snjalltæki, símar og spjaldtölvur eru í dag orðin sjálfsagður hluti af lífi okkar flestra og búa yfir gríðarlegum möguleikum fyrir fólk með fötlun. Þau geta opnað nýjar leiðir til að nálgast upplýsingar, tengjast öðrum og sinna verkefnum tengdum námi, vinnu og daglegu lífi á sjálfstæðan hátt.
Markhópur: Notendur snjalltækja sem vilja nýta innbyggðar aðgengislausnir til að auka sjálfstæði sitt í hversdeginum.
Markmið: Að sýna þátttakendum hvernig þeir geta gert meira með símanum sínum. Farið er yfir hvernig má láta tækið lesa og skrifa texta, stýra því með raddskipunum, setja upp áminningar og nýta tæknina til að auðvelda skipulag og samskipti.
Um er að ræða hagnýtt námskeið fyrir ungmenni (18+) og fullorðna. Kennt er í litlum hópum þar sem öllum gefst góður tími til að prófa sig áfram á eigin tækjum í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Leiðbeinandi: Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur.