Máltækni er undirgrein tölvunarfræði og málvísinda sem gerir stafrænum kerfum kleift að skilja, vinna með og herma eftir mannlegu máli, hvort sem það er talað eða skrifað. Fyrir fólk með fatlanir nýtist hún sem öflugt aðgengisverkfæri, til dæmis í formi skjálesara fyrir blinda, raddstýringar fyrir hreyfihamlaða og talgervingar fyrir fólk sem á erfitt með tjáningu. Með því að brúa bilið á milli manns og tölvu eykur máltæknin sjálfstæði og virka þátttöku einstaklinga í stafrænu samfélagi.
Máltæknilausnir
Lausnir
7 lausnir í þessum flokki
Eleven Labs raddir
ElevenLabs er gervigreindartól sem framleiðir hágæða talgervla og býður upp á gott líkan fyrir íslenska tungu.
Flýtiorðasafn – leiðbeiningar
Flýtiorðasöfn geta sparað mikinn tíma og minnkað líkamlegt álag við ritun á snjallsíma. Hér er farið yfir hvernig þú býrð til þín eigin flýtiorð og hvernig þú eyðir þeim aftur ef þörf krefur.
Ljóslestur (OCR)
Ljóslestur (OCR) breytir prentuðum eða handskrifuðum texta á myndum og skönnuðum skjölum yfir í stafrænan texta.
Símarómur
Símarómur er íslenskt talgervilsforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, gefið út af tæknifyrirtækinu Grammatek.
Spáritun og flýtiorðasöfn
Spáritun og flýtiorðasöfn gera innslátt í símum og spjaldtölvum auðveldari. SwiftKey og GBoard hafa bestu spáritun þegar skrifað er á íslensku.
Talgervlar: Íslenskar raddir fyrir tæki og tól
Talgervill breytir skrifuðum texta í tal. Hann nýtist öllum sem eiga auðveldara með að meðtaka upplýsingar í gegnum heyrn en lestur, svo sem fólki með lestrarerfiðleika eða sjónskerðingu.
Upplestur í Microsoft Edge
Edge-vafrinn býður upp á innbyggðan upplestur á íslensku með röddunum Guðrúnu og Gunnari.