Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMáltæknilausnir

Flýtiorðasafn – leiðbeiningar

HeyrnHreyfingMinniSjónStýrikerfiTjáningÞroski

Flýtiorðasöfn geta sparað mikinn tíma og minnkað líkamlegt álag við ritun á snjallsíma. Hér er farið yfir hvernig þú býrð til þín eigin flýtiorð og hvernig þú eyðir þeim aftur ef þörf krefur.

Hvernig á að setja upp flýtiorð?

Þegar þú býrð til flýtiorð velur þú stutta skammstöfun (t.d. mkv) og ákveður hvaða texti á að koma í staðinn (t.d. Með kærri kveðju). Í hvert sinn sem þú skrifar skammstöfunina og ýtir á bilstöngina breytist hún í fulla setningu.

Í iPhone og iPad (iOS):

  1. Opnaðu Settings -> General.
  2. Veldu Keyboard -> Text Replacement.
  3. Ýttu á + merkið efst í hægra horninu.
  4. Skrifaðu langa textann í reitinn Phrase og stuttu skammstöfunina í reitinn Shortcut.
  5. Smelltu á Save.

Í Android tækjum:

  1. Opnaðu Stillingar (Settings) -> Almenn stjórnun (System) ->
  2. Smelltu á Persónuleg orðabók (Personal dictionary)
  3. Ýttu á + merkið til að bæta við nýju orði og flýtiorði.