Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMáltæknilausnir

Upplestur í Microsoft Edge

ForritHreyfingSjónTjáningÞroski

Markmið og markhópur: Edge-vafrinn býður upp á innbyggðan upplestur á íslensku með röddunum Guðrúnu og Gunnari. Lausnin nýtist fólki með sjónskerðingu, lesblindu eða annan lestrarvanda og þeim sem læra betur með því að hlusta. Hún virkar jafnt á vefsíðum og PDF-skjölum og er öllum aðgengileg sem nota vafrann, hvort sem er í símum, spjaldtölvum eða borð-/fartölvum.

Svona er upplesturinn ræstur:

  • Í gegnum valmynd: Þú getur bæði valið textann sem þú vilt láta lesa upp eða ekki. Smelltu á hægri músarhnapp þannig að valmynd birtist, veldu Fleiri verkfæri og svo Lesa upphátt (sjá mynd). Einnig má nota flýtilykilinn Ctrl + Shift + U. Þá birtist stjórnstika efst á síðunni þar sem hægt er að stoppa og hefja lestur, velja rödd (Guðrún eða Gunnar) og talhraða.
Mynd af valmynd sem birtist þegar hægri smellt er. Hér má sjá valmöguleikana: Fleiri verkfæri og Lesa upphátt.

Lestrarsnið: Einnig er mælt með að skoða vefsíður í aðgengilegra lestrarumhverfi til að fá hreinan texta án auglýsinga og truflana:

  1. Smelltu á þrjá punkta í vistfangastikunni og veldu Lestrarsnið eða ýttu á F9 á lyklaborðinu.
  2. Smelltu á Stillingarhjólið og veldu „Útlitsstillingar“ til að breyta leturstærð, leturgerð eða bakgrunnslit til að auðvelda lesturinn.
  3. Þar er einnig hægt að velja „Festa lestrarsnið á tækjastiku“. Þá birtist hnappurinn efst hægra megin í vafranum og er fljótlegt að opna hann.
  4. Hér getur þú líka ræst upplestur, þýtt síðuna yfir á önnur tungumál, notað gervigreind til að taka saman og fengið skýringar á innihaldi textans.