Fara beint í efni

HeimTæknilausnirSpjaldtölvur

Talgervlar: Íslenskar raddir fyrir tæki og tól

ForritSjónStýrikerfiTjáning

Markmið og gagnsemi: Talgervill breytir skrifuðum texta í tal. Hann nýtist öllum sem eiga auðveldara með að meðtaka upplýsingar í gegnum heyrn en lestur, svo sem fólki með lestrarerfiðleika eða sjónskerðingu.

Hvernig eru þeir notaðir? Talgervlar eru notaðir til að láta tölvur, snjallsíma og spjaldtölvur lesa upp vefsíður, rafbækur eða skilaboð. Hægt er að velja á milli mismunandi radda eftir því hvaða tæki eða forrit er notað.

Hvaða raddir eru í boði og hvernig nást þær?

  • Ivona (Karl og Dóra): Þessar raddir eru elstu raddirnar sem eru notaðar í dag og hafa verið mikið notaðar í gegnum árin. Blindrafélagið (www.blind.is) sér um afhendingu þeirra.
  • Grammatek (Steinn og fleiri): Hefur þróað nokkrar raddir í gegnum appið Símaróm. Símarómur fæst í Google Play og App Store. Athugið að greiða þarf áskrift fyrir notkun í iOS (iPhone/iPad). Sumar raddir bjóða upp á stillingar fyrir tón og blæbrigði. Barnaraddir eru í vinnslu.
  • Microsoft (Gunnar og Guðrún): Innbyggðar raddir sem hægt er að nota beint í Microsoft-forritum, eins og Word eða Edge-vafranum.
  • Google-röddin: Sjálfgefin rödd í Android-tækjum og Chrome-vafra. Hún er valin í stillingum tækisins. Í Chrome er gott að nota viðbótina Read Aloud sem getur notað Google-röddina.