Fara beint í efni

HeimTæknilausnirRaddinnsláttur

SnapType

ForritHreyfingTjáningÞroski

SnapType er einfalt hjálpartæki fyrir þá sem eiga erfitt með að skrifa með höndunum, t.d. vegna hreyfihömlunar eða lesblindu. Markmið forritsins er að gera öllum kleift að leysa verkefni í vinnubókum á sjálfstæðan hátt.

Forritið breytir pappírsvinnubókum í stafrænt form. Notendur taka mynd af blaðinu eða hlaða inn PDF-skjali og geta þá:

  • Skrifað inn texta: Notaðu lyklaborð til að svara spurningum.
  • Notað raddinnslátt (tal í texta): Talaðu inn svörin í stað þess að nota lyklaborð.
  • Fengið upplestur (texti í tal): Láttu forritið lesa upp texta af síðunni með íslenskum röddum (t.d. Google rödd eða Símarómi).
  • Vistað og deilt verkefnum beint í skólakerfi á borð við Google Classroom og Seesaw.

SnapType er fáanlegt fyrir iPad (App Store) og Chromebook (Google Play). Hægt er að prófa ókeypis útgáfu með takmörkuðum fjölda skjala. Full útgáfa (SnapType Pro) er keypt með einskiptisgreiðslu (einstaklingar) eða árlegri áskrift (skólar).