Raddinnsláttur er tækni sem gerir þér kleift að tala við tölvuna eða símann þinn í stað þess að nota lyklaborð. Tækið hlustar á röddina þína og breytir orðunum þínum sjálfkrafa yfir í ritaðan texta á skjánum. Raddinnsláttur er frábært hjálpartæki fyrir fólk sem á erfitt með að nota lyklaborð (t.d. vegna hreyfihömlunar eða gigtar) og fyrir þá sem eiga erfitt með stafsetningu vegna lesblindu eða annarra erfiðleika. Dæmi um lausnir sem leyfa raddinnslátt á íslensku eru Hreimur frá Málstað og Voice typing í Google Docs. Þá er hægt að kaupa aðgang að AI viðbótum við vafra sem skilja íslensku, s.s. Aivo og Voice Everywhere.
Raddinnsláttur
Lausnir
3 lausnir í þessum flokki
Kami
Kami er forrit sem leyfir raddinnslátt við innfyllingu pdf- og doc-skjala í tölvu eða spjaldtölvu og getur því hjálpað nemendum sem eiga erfitt með handskrift að vinna í verkefnabókum.
SnapType
SnapType er einfalt hjálpartæki fyrir þá sem eiga erfitt með að skrifa með höndunum, t.d. vegna hreyfihömlunar eða lesblindu.
Talgreiningarforrit Wispr Flow
Wispr Flow er talgreiningarforrit sem styður íslensku. Það breytir töluðu máli í ritaðan texta í rauntíma með hjálp gervigreindar.