Fara beint í efni

HeimTæknilausnirWindows-tölvur

Myndaþema – norrænn orðaforðavefur

ForritTjáningÞroski

Myndaþema (Bildetema) er norrænn vefur sem hannaður er sem fjöltyngd myndaorðabók. Vefurinn sýnir hugtök með myndum, texta og hljóðskrám á mörgum tungumálum, þar á meðal íslensku.

Markmið og notkun

Markmið vefsins er að styðja við tungumálanám og hugtakaskilning. Hann inniheldur einfaldan orðaforða sem skiptist niður eftir flokkum og þemum. Notendur geta séð orðin skrifuð og hlustað á réttan framburð þeirra á þeim tungumálum sem valin eru hverju sinni.

Hverjum nýtist lausnin?

Vefurinn nýtist afar vel sem kveikja að fjölbreyttri vinnu með tungumál og málörvun. Hann hentar sérstaklega vel fyrir nemendur sem eru að læra íslensku, en getur einnig nýst nemendum við almenna örvun á orðaforða og tjáningu. Þá getur hann nýst sem sjálfstæðar æfingar til einstaklinga sem þurfa að æfa upp tjáningu og/eða framburð orða eftir áfall.

Aðgengi og verð

Myndaþema er opin vefsíða og notkunin er ókeypis. Vefurinn er aðgengilegur í gegnum vafra á tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum.