Markmið: Málstaður er vefsíða í eigu Miðeindar sem hýsir fjórar snjallar máltæknilausnir. Markmiðið er að styðja við íslenska málnotendur og auðvelda vinnu með texta og tal í daglegu lífi og starfi.
Hverjum nýtist lausnin? Málstaður nýtist öllum sem skrifa, þýða eða vinna með upplýsingar á íslensku. Lausnirnar henta sérstaklega vel fyrir nemendur, skrifstofufólk og þá sem þurfa aðstoð við að skilja eða framleiða vandaðan texta.
Hvernig er hún notuð? Innan Málstaðar er hægt að velja um fjórar mismunandi leiðir:
- Málfríður: Yfirlesari sem lagfærir málfar og stafsetningu. Hún getur einnig tekið saman aðalatriði úr löngum textum.
- Hreimur: Talgreining sem breytir hljóði í texta. Frábært til að rita niður upptökur eða fá samantekt úr hljóðskrám.
- Erlendur: Þýðingarvél sem þýðir á milli íslensku og annarra tungumála. Hann tekur mið af íslensku samhengi og menningu.
- Snara: Safn rafrænna orðabóka á mörgum tungumálum.
Hvernig nálgast maður hana? Hægt er að nálgast lausnirnar á vefsvæði Málstaðar. Boðið er upp á ókeypis aðgang sem takmarkast við litla notkun, en með því að kaupa áskrift fæst fullur aðgangur að öllum tólunum.