Fara beint í efni

HeimTæknilausnirWindows-tölvur

Ljóslestur (OCR)

ForritSjónTjáning

Markmið

Ljóslestur breytir prentuðum eða handskrifuðum texta á myndum og skönnuðum skjölum yfir í stafrænan texta. Við það verður hægt að leita í honum, afrita hann og breyta í tölvu eða snjallsíma.

Hverjum nýtist lausnin?

Ljóslestur nýtist öllum sem vinna með pappírsgögn á stafrænu formi sem þarf að vinna með frekar. Lausnin er sérstaklega gagnleg fólki með lestrarerfiðleika eða sjónskerðingu, því talgervlar geta lesið stafrænan texta upphátt.

Hvernig er hún notuð?

  • Í snjallsíma: Beindu myndavélinni að texta eða notaðu smáforrit eins og Microsoft Lens eða Google Keep til að ná textanum.
  • Í tölvu og á vef: Hladdu skjali upp í Google Docs eða Adobe Acrobat. Einnig er hægt að nota Lísu á vefsíðu Málstaðs til að ljóslesa íslensk skjöl (pdf, jpg eða png).
  • Hlustun: Notaðu talgervil til að hlusta á textann, t.d. Símaróm (Stein), Microsoft raddirnar (Guðrúnu og Gunnar) eða Read Aloud í vafra.

Hvar er hægt að nálgast lausnina?

Ljóslestur er oft innbyggður og ókeypis í nýlegum snjalltækjum og stýrikerfum. Þá býður Málstaður upp á ljóslestur með Lísu (Lísa | Málstaður).

Ábending: Til að nota upplestur á texta þarf að vera aðgangur að íslenskri rödd í tækinu. Skoðaðu færslu á vef TMF um þær íslensku raddir sem eru í boði. Talgervlar: Íslenskar raddir fyrir tæki og tól – TMF