Fara beint í efni

HeimTæknilausnirWindows-tölvur

Festilyklar (sticky keys)

AðgengiHreyfingStýrikerfiTegund

Markmið og notkun

Festilyklar (Sticky Keys) er aðgengisstýring sem auðveldar notkun flýtilykla. Í stað þess að halda mörgum lyklum inni samtímis (eins og Ctrl + Alt + Del eða Shift + stafur) getur notandinn ýtt á einn lykil í einu. Kerfið heldur breytilyklinum virkum þar til ýtt er á næsta staf.

Einnig er hægt að læsa lykli (eins og Ctrl eða Shift) með því að ýta tvisvar á hann í röð. Kerfið getur jafnframt gefið frá sér hljóðmerki þegar kveikt er á aðgerðinni eða þegar ýtt er á breytilykil, sem veitir skýra staðfestingu.

Hverjum nýtist lausnin best?

Lausnin hentar einkum einstaklingum með skerta hreyfigetu í höndum og þeim sem slá inn texta með einni hendi.

Hvernig er hún nálguð og virkjuð?

Lausnin er innbyggð í flest stýrikerfi og kostar ekkert:

  • Windows: Ýttu fimm sinnum í röð á Shift-lykilinn eða farðu í: Stillingar > Aðgengi > Lyklaborð.
  • macOS: Farðu í: Kerfisstillingar > Aðgengi > Lyklaborð og kveiktu á Sticky Keys.
  • Snjalltæki: Í stillingum undir aðgengi fyrir ytri lyklaborð.

Einnig er hægt að búa til sérsniðinn flýtiaðgang til að virkja festilykla