TD Snap Grunnnámskeið
Um námskeiðið: TD Snap er öflugt tjáskiptaforrit á íslensku sem hefur reynst afar vel fyrir einstaklinga sem ekki tala eða þurfa stuðning við talað mál. Á þessu hagnýta grunnnámskeiði kynnast þátttakendur undirstöðuatriðum forritsins, uppsetningu og helstu stillingum, ásamt mikilvægum þáttum sem snúa að hlutverki góðra tjáskiptafélaga.
Markhópur: Námskeiðið er ætlað starfsfólki skóla og leikskóla, fagaðilum, foreldrum og öðrum aðstandendum nemenda sem nota eða stefna á að nýta TD Snap til tjáskipta.
Sérstakt tilboð til aðstandenda: Við bjóðum tveimur aðstandendum/fjölskyldumeðlimum að koma saman á verði eins (2 fyrir 1). Til að nýta tilboðið er nóg að skrá annan aðilann, taka fram nafn hins og tengsl í athugasemd við skráningu eða senda okkur línu á tmf@tmf.is.
Markmið:
Að þátttakendur:
-
Öðlist öryggi í að stilla, aðlaga og sérsníða TD Snap að þörfum hvers nemanda.
-
Geti tengt forritið við MyTobii Dynavox og nýtt þar aðgengilegt efni.
-
Læri hvernig styðja má við notandann í daglegu starfi sem öflugur tjáskiptafélagi.
Helstu viðfangsefni:
-
Skráning og tengingar: Skráning á MyTobii Dynavox og sótt efni í Pageset Central.
-
Uppsetning og aðlögun: Stjórnborð á íslensku, mismunandi myndamöguleikar og breyting á framburði orða.
-
Umsýsla með síður: Sækja, afrita og tengja síðusett og síðubúnt, ásamt því að aftengja krækjur.
-
Efnisgerð: Búa til nýja orðalista, breyta „fyrst og svo“, setja upp handrit og tengja YouTube-myndbönd.
-
Tjáskiptaumhverfi: Hvað einkennir góðan tjáskiptafélaga og hvað skiptir mestu máli í daglegri notkun.
Fyrirkomulag:
Verklegt og gagnvirkt námskeið þar sem farið er yfir helstu aðgerðir skref fyrir skref. Í lokin gefst gott rými fyrir spurningar og umræður.
Athugið: Mikilvægt er að þátttakendur mæti með eigin tölvu með uppsettu TD Snap forriti. Hægt er að sækja ókeypis prufuútgáfu fyrir Windows hér: MyTobiiDynavox Support.
Leiðbeinandi:
Hanna Rún Eiríksdóttir, kennari og ráðgjafi í Klettaskóla.
