Loading Viðburðir

Heim Þjónusta Tölvan mætt og hvað svo?

Tölvan mætt og hvað svo?

19. nóvember 2026 13:00 – 16:00 Mannréttindahúsið

Um námskeiðið: Stærsta áskorun tengt tjáskiptatækni er að gera að eðlilegum, virkum og skemmtilegum hluta af öllum deginum. Á þessu námskeiði er sjónum beint að umhverfinu og aðferðum til að byggja upp færni og frumkvæði til samskipta. Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að setja raunhæfar kröfur, vera fyrirmynd í tjáskiptum og styrkja tjáskiptafærni notandans.

Markhópur:  Námskeiðið er ætlað kennurum og starfsfólki í kringum einstakling sem notar eða er að læra á tjáskiptaforrit, t.d. TD Snap. Þar á meðal

  • Fagaðilum s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og talmeinafræðingum.
  • Stuðningsfulltrúum í leik- og grunnskólum eða frístundastarfi
  • Liðveitendum og öðrum umönnunaraðilum
Forkröfur: Gert er ráð fyrir að þátttakendur þekki grunninn á TD Snap eða séu í teymi þar sem tæknileg forritun er nú þegar í höndum annarra. ATHUGIÐ að þetta námskeið fjallar ekki um tæknilegar stillingar í forritinu.
Markmið: Í þessu námskeiði eiga þátttakendur að:
  • öðlast öryggi og færni í að nota tjáskiptatækni s.s. TD Snap, í samskiptum við notandann í rauntíma.
  • læra að skapa náttúruleg samskiptatækifæri í daglegum rútínum.
  • vita hvernig á að bregðast við höfnun og mótstöðu við tjáskiptalausn.

Helstu viðfangsefni:

  • Fyrirmynd og sýnikennsla (Modeling / Aided Language Input): Að tala með tækinu í stað þess að prófa eða spyrja notandann.
  • Kjarnaorð (Core Words): Hvernig við notum mikilvægustu samskiptaorðin í ólíkumstundum dagsins.
  • Tækifæri í rútínunni: Að breyta matartíma, leik, klæðnaði og frístund í samræðustundir.
  • Áskoranir og viðbrögð: Hvað gerum við þegar notandinn vill ekki nota tækið eða sýnir lítinn áhuga?
  • Samræming innan teymis: Að allir umhverfis notandann tali sama „tungumálið“ og beiti sömu aðferðum.

Fyrirkomulag: 

  • Lengd: 3 klukkustundir (með kaffihléi).
  • Búnaður: Gott er að koma með spjaldtölvu með tjáskiptaforriti ef mögulegt er, en það er ekki skilyrði.

Leiðbeinandi:  Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur

Mynd af Þórunni Halldórsdóttur leiðbeinanda námskeiðs

Miðar

The numbers below include tickets for this event already in your cart. Clicking „Get Tickets“ will allow you to edit any existing attendee information as well as change ticket quantities.
Tölvan mætt og hvað svo?
Námskeið um notkun tjáskiptatækni í daglegu lífi
19.900 kr.
10 available