Kami er forrit sem gerir nemanda auðvelt að skrifa inn í skjöl í tölvu eða spjaldtölvu og getur því hjálpað nemendum sem eiga erfitt með handskrift að vinna í verkefnabókum.
Hvað getur þú gert í Kami?
1. Sett inn verkefni: Þú getur sett inn myndir af verkefnabókum eða skjöl úr Google Drive og OneDrive.
2. Skrifað og talað: Þú getur skrifað með lyklaborði eða notað röddina þína til að láta forritið skrifa fyrir þig.
3. Hlustað: Forritið getur lesið íslenskan texta upphátt fyrir þig.
4. Tekið upp hljóð: Þú getur tekið upp þína eigin rödd til að skila verkefni munnlega.
Hvernig notar maður Kami?
Á iPad: Best er að nota Kami í Safari-vafranum.
Í Android spjaldtölvu eða PC tölvum: Best er að nota Kami í Chrome-vafranum.
Hvað kostar forritið?
Það er til frí útgáfa sem allir geta notað en til að nota alla möguleika forritsins þarf að borga fyrir áskrift. Frekari upplýsingar um Kami má finna hér
