Fara beint í efni

HeimTæknilausnir

Textaupplestur

Textaupplestur (Text-To-Speech) styður við lestur á texta á rafrænu formi, t.d. fréttir á vef, bréf frá opinberum aðilum, skilaboð og tölvupósta. Blindir og sjónskertir nota textaupplestur í allri tölvuvinnu og fá raddendurgjöf þegar þeir nota snjalltæki. Textaupplestur nýtist einnig mörgum til að lesa yfir eigin texta áður en hann er notaður.

Lausnir

8 lausnir í þessum flokki

Eleven Labs raddir

ElevenLabs er gervigreindartól sem framleiðir hágæða talgervla og býður upp á gott líkan fyrir íslenska tungu.

ForritTjáning
Skoða nánar

Kami

Kami er forrit sem leyfir raddinnslátt við innfyllingu pdf- og doc-skjala í tölvu eða spjaldtölvu og getur því hjálpað nemendum sem eiga erfitt með handskrift að vinna í verkefnabókum.

ForritHreyfingTjáning
Skoða nánar

Ljóslestur (OCR)

Ljóslestur (OCR) breytir prentuðum eða handskrifuðum texta á myndum og skönnuðum skjölum yfir í stafrænan texta.

ForritSjónTjáning
Skoða nánar

Símarómur

Símarómur er íslenskt talgervilsforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, gefið út af tæknifyrirtækinu Grammatek.

ForritSjónStýrikerfiTjáning
Skoða nánar

SnapType

SnapType er einfalt hjálpartæki fyrir þá sem eiga erfitt með að skrifa með höndunum, t.d. vegna hreyfihömlunar eða lesblindu.

ForritHreyfingTjáningÞroski
Skoða nánar

Talgervlar: Íslenskar raddir fyrir tæki og tól

Talgervill breytir skrifuðum texta í tal. Hann nýtist öllum sem eiga auðveldara með að meðtaka upplýsingar í gegnum heyrn en lestur, svo sem fólki með lestrarerfiðleika eða sjónskerðingu.

ForritSjónStýrikerfiTjáning
Skoða nánar

Upplestur í Microsoft Edge

Edge-vafrinn býður upp á innbyggðan upplestur á íslensku með röddunum Guðrúnu og Gunnari.

ForritHreyfingSjónTjáningÞroski
Skoða nánar

Voice Dream Reader

Voice Dream Reader er öflugt snjallforrit sem breytir texta í tal.

AðgengiForritHeyrnHreyfingSjónTjáningÞroski
Skoða nánar