Fara beint í efni

HeimTæknilausnirTjáskiptatæknilausnir

WeaveChat tjáskiptaforrit

ForritTjáning

WeaveChat er ókeypis myndrænt tjáskiptaforrit. Markmið þess er að auðvelda fólki með tal- og tjáskiptaskerðingu að tjá sig í daglegu lífi. Forritið nýtist best einstaklingum sem nota táknmyndir til tjáskipta, ásamt aðstandendum þeirra og fagaðilum.

Hvernig er það notað? Notendur tjá sig með því að ýta á táknmyndir á skjá sem breytast í tal eða texta. Boðið er upp á tilbúin tjáskiptaborð sem hægt er að aðlaga, þar á meðal heildstætt borð á íslensku. Einnig er einfalt að smíða lítil eða stór borð frá grunni sem henta hverjum og einum. Forritið virkar líka sem skilaboðaforrit, þar sem hægt er að senda táknskilaboð á milli ólíkra tækja, til dæmis úr spjaldtölvu barns yfir í síma hjá foreldri.

Til að útbúa og breyta tjáskiptaborðunum er vefsíðan WeaveChat Connect notuð. Á opinberri vefsíðu WeaveChat má finna gagnlegar leiðbeiningar á ensku, bæði í texta og myndböndum.

Hvernig nálgast maður forritið? WeaveChat virkar í snjallsímum, spjaldtölvum og borðtölvum (Android, iOS og Windows). Forritið er ókeypis fyrir einstaklinga og hlaðið niður í App Store eða Google Play. Stofnanir og fagaðilar sem vinna með mörgum skjólstæðingum geta keypt sérstaka áskrift. Hún gerir þeim kleift að deila sérsniðnum borðum og sækja efni á milli ólíkra notenda.

Skjáskot úr weavechat forritinu sem sýnir myndir af fornöfnum og sögnum.