Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMyndrænt skipulag

Vigdís – app fyrir sjónrænt skipulag

ForritHreyfingMinniSjónTjáning

Vigdís er íslenskt smáforrit (app) sem hannað er til að veita sjónrænt og heyrnrænt skipulag fyrir dagleg verkefni. Forritið notar einföld tákn, myndir, texta og innbyggðan íslenskan talgervil til að kynna dagskrá og athafnir á skýran hátt í einföldu viðmóti.

Markmið

Markmiðið er að efla sjálfstæði, auka öryggistilfinningu og bæta tímaskyn hjá einstaklingum sem þurfa stuðning við daglega rútínu. Forritið getur auðveldað einstaklingnum að sjá hvað er fram undan, að skipta úr einu verkefni í annað og minnkar álag á vinnsluminni með því að sýna skref dagsins með mynd og tali.

Fyrir hverja?

Vigdís hentar börnum, ungmennum og fullorðnum með þroskahömlun, á einhverfurófi eða með aðrar áskoranir sem hafa áhrif á skipulag og verkefnaskipti.

Kostir og gallar

  • Kostir: Allt viðmótið og innbyggður talgervill eru á íslensku. Einfalt og skýrt útlit sem veldur lágmarksáreiti. Auðvelt er að sérsníða verkefni með eigin myndum og hljóði.
  • Gallar: Forritið inniheldur færri viðbótareiginleika eða stillingarvalkosti (svo sem fjölbreytta tímamæla) samanborið við mörg erlend skipulagsforrit.

Hvar er hana að finna?

Vigdís er fáanleg fyrir spjaldtölvur og snjallsíma. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um aðgang má finna á heimasíðu fyrirtækisins vigdisapp.is.