Fara beint í efni

Tjáskiptatölvur eru sérhannaður búnaður sem gegnir því hlutverki að vera tjáskiptatæki og í sumum tilvikum umhverfisstjórnunarbúnaður (t.d. til að stýra sjónvarpi eða ljósum).

Kostir umfram venjulegar spjaldtölvur

  • Harðgerðari: Tækin eru sterkbyggð og þola oft meira hnjask.
  • Hljóðkerfi: Búa yfir öflugri hátölurum sem gera notandanum kleift að heyrast betur í fjölmenni.
  • Stýrileiðir: Styðja fjölbreyttar aðferðir til stjórnunar, s.s. augnstýringu, höfuðmús, rofa og stýripinna.
  • Sérhæfing: Tækið er eingöngu notað til tjáskipta sem minnkar truflun frá öðrum forritum eða leikjum.

Gallar

  • Umfang: Tækin eru oft þyngri og stærri en spjaldtölvur sem getur gert flutning milli staða erfiðari.
  • Kostnaður: Þetta eru dýrari lausnir en hefðbundnar spjaldtölvur.

Umboðsaðili

Algengustu tjáskiptatölvurnar hér á landi koma frá framleiðandanum TobiiDynavox (umboðsaðili á Íslandi er Öryggismiðstöðin).