Tjáskiptaspjöld eru einföld, áhrifarík og ódýr lausn sem byggir á útprentuðum myndum, táknum eða orðum. Markmið þeirra er að auðvelda fólki með tal- og tjáskiptaskerðingu að tjá sig með því að benda á viðeigandi reit. Lausnin nýtist einstaklingum á öllum aldri, aðstandendum þeirra og fagaðilum í daglegu starfi.
Hvernig eru þau notuð? Notandi bendir á tákn eða myndir á spjaldinu til að tjá óskir sínar, líðan eða skoðanir. Spjöldin eru oft plöstuð til að auka endingu og gera þau nothæf við ólíkar aðstæður, svo sem við matborðið eða utandyra.
Hönnun spjaldanna fer algerlega eftir þörfum notandans:
- Fjöldi og stærð: Huga þarf að sjón og hreyfifærni þegar ákveðið er hversu stórar myndirnar eru og hversu margar komast fyrir.
- Innihald: Spjöld geta geymt almennan grunnorðaforða eða verið bundin við ákveðnar aðstæður (þemaspjöld), til dæmis fyrir föndur eða leikvöllinn.
Hvernig nálgast maður lausnina? Hægt er að hanna eigin spjöld með ljósmyndum úr umhverfinu eða nýta sérhæfða myndabanka á netinu. Á vefsíðu TMF um myndabanka er að finna góðar upplýsingar og tengla á ókeypis táknasöfn til að útbúa tjáskiptaspjöld.
