Fara beint í efni

HeimTæknilausnirTjáskiptatæknilausnir

TD Snap tjáskiptaforrit

ForritHreyfingTjáning

Markmið og notkun

TD Snap er myndrænt tjáskiptaforrit sem hannað er til að styðja við fólk með tal- og málhömlun. Forritið býður upp á margvíslegar leiðir til að setja upp orðaforða, allt eftir því hvað hentar notandanum:

  • Kjarnaorðaforði: Algengustu orðin í daglegu tali.
  • Þemaskiptur orðaforði: Orð sem tengjast ákveðnum aðstæðum eða áhugamálum.
  • Aðstæðumyndir: Raunverulegar myndir sem hægt er að nýta með táknmyndum til að eiga í samskiptum sem tengjast aðstæðum eða staðsetningum.
  • Stafa- og teikniborð: Fyrir þá sem nota stafi eða teikningar til að tjá sig.

Góður stuðningur er við hugbúnaðinn og hægt er að hlaða niður tilbúnum tjáskiptaborðum frá öðrum notendum í gegnum vefinn myTobiiDynavox.

Tæki og aðgengi

TD Snap virkar með mismunandi ílagi sem hentar þörfum hvers og eins, bæði með beinu vali (t.d. að snerta skjá eða nota augnstýringu) og skönnun með rofum.

Forritið er hannað fyrir sérhæfðar tjáskiptatölvur (t.d. TD I-110 og TD I-Series) sem keyra á Windows, en einnig er hægt að nota það í iPad. Íslensku Microsoft raddirnar, Guðrún og Gunnar, eru nú aðgengilegar í báðum útgáfum. Athugið að iPad-útgáfan er seld í áskrift.

Hvernig nálgast ég TD Snap?

  • Umboð og þjónusta: Öryggismiðstöðin er umboðsaðili Tobii Dynavox á Íslandi.
  • Niðurgreiðsla: Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) geta niðurgreitt forritið fyrir einstaklinga með mikla málhömlun. Fagaðili, eins og talmeinafræðingur eða iðjuþjálfi, þarf að meta þörfina og sækja um á vef SÍ.
  • Námskeið: TMF heldur reglulega grunnnámskeið í TD Snap þar sem farið er yfir notkun og innleiðingu.