Fara beint í efni

HeimTæknilausnirSímar

Talgreiningarforrit Wispr Flow

ForritHreyfingMinniSjónTjáningÞroski

Markmið og notkun:

Wispr Flow er talgreiningarforrit sem breytir töluðu máli í ritaðan texta í rauntíma með hjálp gervigreindar. Notandi virkjar forritið með hnappi eða flýtilykli, talar inn í hljóðnemann og textinn birtist beint þar sem bendillinn er staðsettur. Forritið setur sjálfkrafa inn greinarmerki og styður íslensku ásamt fleiri tungumálum. Til að nota forritið þarf stöðuga nettengingu.

Hverjum nýtist lausnin best?

Lausnin hentar fólki með lesblindu, skerta hreyfigetu í höndum, verki við lyklaborðsnotkun eða þeim sem eiga auðveldara með að tjá sig með tali en skrift.

Hvar er hægt að nálgast hana?

Forritið er sótt á vefsíðu þróunaraðila eða í App Store eða Play Store. Það er aðgengilegt fyrir bæði macOS og Windows stýrikerfin, sem og iOS og Android snjalltæki. Í boði er ókeypis aðgangur sem er takmarkaður en frekari aðgangur krefst áskriftar (sjá nánar hér).

Wispr Flow er áhugaverð talgreiningarlausn sem styður íslensku á iOS og getur því aukið aðgengi fyrir marga notendur sem eiga erfitt með ritun. Hins vegar fer talgreining fram í skýjaþjónustu og notendur ættu að kynna sér persónuverndar- og gagnageymslustefnu þjónustunnar áður en þeir nota hana fyrir viðkvæmar upplýsingar.