Studd skönnun er lágtækni-tjáskiptalausn fyrir einstaklinga sem geta, vegna hreyfi- eða sjónskerðingar, ekki flett tjáskiptabók eða notað bendingar til að velja skilaboð í tjáskiptalausn.
Í studdri skönnun fer viðmælandi kerfisbundið í gegnum valmöguleika í fyrirfram ákveðinni röð. Valmöguleikarnir geta verið lesnir upp (heyrnræn skönnun), sýndir með því að benda á myndir eða orð (sjónræn skönnun), eða bæði.
Notandinn gefur til kynna val sitt með einföldu og áreiðanlegu svari, til dæmis með hreyfingu, látbragði eða hljóði.
Kostir studdrar skönnunar
- Túlkað betur tilgang hreyfinga og greint á milli viljastýrðra og ósjálfráðra hreyfinga.
- Aðlagað hraða og tímasetningu skönnunar að dagsformi einstaklingsins.
- Lesið í óyrtar og óljósar vísbendingar.
- Aðlagað samskiptin að aðstæðum og þörfum hverju sinni.