Speech Assistant AAC er einfalt og aðgengilegt tjáskiptaforrit sem breytir texta í tal. Markmið forritsins er að auðvelda fólki með taltruflanir að eiga samskipti í daglegu lífi. Speech Assistant hefur þann kost að það hentar vel að vera sett upp í síma.
Hverjum nýtist lausnin?
Forritið nýtist best þeim sem geta lesið og skrifað en eiga erfitt með tal, til dæmis vegna heilablóðfalls, ALS, mænuskaða eða annarra aðstæðna. Með því að nota myndir með textanum er hægt að minnka kröfur um lestrarfærni.
Notkun
Notandi skrifar texta á skjáinn eða velur tilbúna talandi flýtihnappa með algengum orðum og setningum. Hægt er að flokka orðaforða eftir flokkum, stækka hnappa og aðlaga liti að þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að hafa bara texta eða texta og mynd. Hægt er að nýta íslenskar raddir, hvort sem er kerfisraddir í Android, Símaróm eða sérhannaðar Eleven Labs raddir.
Aðgengi og kaup
Forritið er fáanlegt fyrir snjalltæki, bæði síma og spjaldtölvur, í App Store (iOS) og Google Play Store (Android). Grunnútgáfa í Android er ókeypis en hún er takmarkaðri en í iOS. Hægt er að nýta ókeypis grunnútgáfu í iOS tækjum en einnig er möguleiki á að kaupa fulla útgáfu með einskiptisgreiðslu.