Fara beint í efni

HeimTæknilausnirSímar

Spáritun eða orðatillögur lyklaborðs

ForritHeyrnHreyfingMinniSjónStýrikerfiTjáningÞroski

Markmið og virkni

Spáritun (e. predictive text) giskar á næsta orð eða staf þegar skrifað er og býður upp á tillögur jafnóðum. Þetta eykur ritunarhraða og fækkar innsláttarvillum.

Fyrir hverja nýtist lausnin?

Spáritun nýtist öllum sem vilja auðvelda sér textagerð. Hún er sérstaklega gagnleg einstaklingum með hreyfihömlun, skerta fínhreyfigetu eða lesblindu, þar sem hún dregur úr líkamlegu álagi og aðstoðar við stafsetningu.

Hvernig er hún notuð og nálgast?

Til að fá spáritun á íslensku í snjallsíma er mælt með að sækja lyklaborð á borð við Gboard eða Microsoft SwiftKey í gegnum App Store (iOS) eða Google Play Store (Android). Þessi lyklaborð eru gjaldfrjáls. Eftir niðurhal er lyklaborðið virkjað í stillingum tækisins og íslenskur orðaforði valinn.

Persónuvernd og öryggi

Við uppsetningu biður lyklaborðið oft um fullan aðgang til að læra á ritstíl notandans. Til að tryggja öryggi persónuupplýsinga er ráðlagt að slökkva á skýjasamstillingu (e. cloud sync) og sjálfvirkri gagnasendingu í stillingum lyklaborðsforritsins. Þá verða gögnin eingöngu geymd í tækinu sjálfu.

Ábending: Ef þú vilt skilgreina eigin skammstafanir fyrir heilar setningar (t.d. „mkv“ verður „Með kærri kveðju“) mælum við með því að kynna sér leiðbeiningar okkar um flýtiorðasöfn.

Leiðbeiningar um uppsetningu flýtiorðasafns