Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMyndrænt skipulag

Sjónrænt skipulag – Visual Schedule Daily Routine

ForritHreyfingMinniSjónTjáningÞroski

Visual Schedule Daily Routine er smáforrit (app) sem nýtir myndir, tákn og hljóðmerki til að brjóta daglega rútínu niður í sjónræn skref. Notendur sjá yfirlit yfir athafnir dagsins og geta flett eða hakað við verkefni eftir því sem þeim lýkur.

Markmið

Markmiðið er að auka fyrirsjáanleika, styðja við verklok og auðvelda flutning á milli ólíkra athafna. Með því að gera hvert skref sýnilegt minnkar álag á vinnsluminni og notandinn fær skýra vísbendingu um framvindu dagsins.

Fyrir hverja?

Forritið hentar börnum, ungmennum og fullorðnum með þroskahömlun, á einhverfurófi eða með aðrar áskoranir sem hafa áhrif á skipulag, tímaskyn og verkefnaskipti í daglegu lífi.

Kostir og gallar

  • Kostir: Hægt er að setja inn eigin ljósmyndir, hljóðskilaboð og tímasettar áminningar. Viðmótið er einfalt og skiptist skýrt niður í verkefnaraðir.
  • Gallar: Valmyndir og kerfistextar eru á ensku (þótt heiti og hljóð verkefna megi setja inn á íslensku). Forritið býður upp á færri félags- eða tilfinningaborð en sum önnur sérhæfð forrit.

Hvar er hana að finna?

Forritið er fáanlegt fyrir iOS (App Store) og Android (Google Play).