Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMyndrænt skipulag

Sjónrænt skipulag – Choiceworks

ForritMinniTjáningÞroski

Skilgreining eða almenn lýsing

Choiceworks er myndrænt forrit (app) sem styður börn við dagskipulag, tímaskilning og tilfinningastjórnun. Forritið inniheldur dagskrá, biðborð og tilfinningaborð með einföldu, sjónrænu viðmóti.

Markmið

Markmiðið er að auka sjálfstæði og öryggi við verkefnaskipti dagsins. Forritið dregur úr óvissu með því að sýna skýrt hvað er fram undan og hvaða bjargráð nýtast þegar áskoranir koma upp.

Fyrir hverja?

Forritið hentar börnum á einhverfurófi, börnum með ADHD eða börnum sem þurfa stuðning við skipulag, verkefnaskipti og tilfinningastjórnun. Það nýtist einnig foreldrum og fagfólki í skóla- og frístundastarfi.

Kostir og gallar

  • Kostir: Notendavænt, mjög sjónrænt og býður upp á innbyggðan tímamæli. Hægt er að hlaða inn eigin myndum, hljóðupptökum og skrifa texta á íslensku.
  • Gallar: Valmyndir og kerfistextar eru á ensku (þótt efnið sjálft megi vera á íslensku).

Hvar er hana að finna?

Choiceworks er fáanlegt í App Store fyrir iPad og iPhone. Nánari upplýsingar má finna á vef framleiðandans, Bee Visual.

Skjáskot úr Choiceworks sem sýnir dagskrá miðvikudags. Fjórar smámyndir sem tákna atburði í skólanum er stillt upp lóðrétt í dálki með heitinu First I need to og hægra megin við hann er annar dálkur sem heitir All Done.