Símarómur er íslenskt talgervilsforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, gefið út af tæknifyrirtækinu Grammatek. Markmið forritsins er að breyta skrifuðum texta í talmál. Það nýtist einstaklingum með lestrar- eða sjónskerðingu, fólki sem notar tjáskiptaforrit og öllum þeim sem vilja hlusta á íslenskan texta.
Hvernig er það notað? Forritið virkar sem kerfisrödd í tækinu. Það getur lesið upp texta af vefsíðum, úr tölvupósti, PDF-skjölum og öðrum forritum. Einnig er hægt að nota nýja ljóslestursvirkni til að skanna prentaðan texti af bók eða blaði og láta lesa hann upp.
Í Android útgáfunni er ein karlmannsrödd (Steinn). Í iOS útgáfunni er hægt að velja um sex mismunandi raddir, þrjár karlraddir og þrjár kvenraddir. Í þremur þeirra má stilla raddblæinn svo hann hljómi hlutlaus, vingjarnlegur eða hjálplegur.
Hvernig nálgast maður forritið? Hægt er að sækja forritið í Google Play Store eða Apple App Store. Símarómur er ókeypis í Android tækjum. Fyrir iOS tæki (iPhone og iPad) þarf að kaupa mánaðarlega áskrift sem kostar tæpa 5 USD á mánuði. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Símaróms.
