Markmið og gagnsemi:
Rofar eru hjálpartæki sem gera fólki kleift að stýra tölvum, snjalltækjum og raftækjum á einfaldan hátt. Þeir nýtast best einstaklingum með skerta hreyfigetu sem eiga erfitt með að nota hefðbundna mús eða lyklaborð. Rofar eru líka frábær tæki til að kenna og æfa skilning á orsök og afleiðingu.
Hvernig eru þeir notaðir?
Rofum er skipt í þrjá meginflokka eftir notkun:
- Stýring á raftækjum: Rofi er tengdur við sérstakt rofabox sem stýrir tækjum, eins og að kveika á eldhústækjum eða virkja leikfang.
- Stýring á tölvubúnaði: Rofabox tengir rofann við tölvu þar sem hann virkar sem ákveðin skipun (t.d. „músarsmellur“). Þannig má spila leiki eða velja tákn á skjánum.
- Talandi rofar: Þessir rofar þurfa ekki rofabox. Þeir spila upptöku þegar ýtt er á þá, sem gerir notandanum kleift að segja „já“, „nei“ eða nota félagslega frasa eins og „hæ“ eða „flott hjá þér“.
Tengimöguleikar
Hægt er að tengja rofa við tæki á tvo vegu. Annars vegar með snúru sem tengist beint í rofabox eða tæki. Hins vegar með Bluetooth-tækni, en þá eru rofarnir þráðlausir. Þráðlausir rofar henta mjög vel með spjaldtölvum (iPad) og snjallsímum.
Úrval og stillingar
Rofar eru til í öllum stærðum og gerðum. Sumir eru stórir, aðrir smáir eða hannaðir til að vera virkjaðir með fæti, höfði eða tungu. Hægt er að stilla næmni þeirra, hversu lengi þarf að þrýsta á þá og hvort þeir virki við smell eða þegar þeim er sleppt.
Hvernig nálgast maður lausnina?
Hægt er að kaupa rofa hjá Öryggismiðstöðinni og Örtækni hér á landi. Erlendir vefir eins og Inclusive Technology bjóða einnig upp á mikið úrval.
Styrkir:
- Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða rofa fyrir þá sem á þurfa að halda.
- Fagaðili, eins og iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari, þarf að leggja mat á þörfina og senda inn umsókn.
TMF veitir ráðgjöf, þjálfun og aðstoð við að velja rétta gerð. Hjá okkur er hægt að skoða og prófa ýmsar útfærslur.