Fara beint í efni

HeimTæknilausnirLyklaborð, mýs og rofar

Quha Zono X höfuðmús

BúnaðurHreyfingTjáning

Hvað er Quha Zono X? Quha Zono X er þráðlaus höfuðmús sem gerir fólki kleift að stýra tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum án þess að nota hendurnar. Hún nýtist einstaklingum með skerta hreyfigetu í höndum, til dæmis vegna mænuskaða, ALS, MS eða CP heilalömunar.

Hvernig er hún notuð? Tækið er örsmátt og létt (aðeins 12 grömm). Því er komið fyrir á höfðinu með segulfestingu á gleraugu notanda, með eyrnaklemmu eða höfuðbandi. Einfaldar og eðlilegar höfuðhreyfingar stýra músarlesaranum á skjánum. Til þess að smella er hægt að nota sérstakan hugbúnað frá fyrirtækinu (e. Dwell software) eða tengja við músina ytri rofa. Tækið tengist tölvunni með Bluetooth og rafhlaðan endist í allt að 18 klukkustundir.

Hvernig nálgast maður hana? Hægt er að fá upplýsingar um þessa og fleiri höfuðmýs hjá Öryggismiðstöðinni.

Mögulegt er að sækja um þennan búnað til Sjúkratryggingar Íslands eftir mat fagaðila.

Mynd sem sýnir útlit höfuðmúsarinnar og eyrnaklemmu.