Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMynda- og táknabankar

Picto Selector

ForritTjáning

Markmið: Picto-Selector er forrit sem er hannað til að auðvelda gerð og prentun á sjónrænu skipulagi. Markmiðið er að styðja við tjáningu og skilning með því að nota myndrænar vísbendingar í daglegu lífi.

Hverjum nýtist lausnin best? Forritið nýtist einstaklingum með fjölbreyttar samskiptaþarfir, svo sem einstaklingum á einhverfurófi og einstaklingum með þroskahömlun. Það er jafnframt gott tæki fyrir aðstandendur, kennara og fagfólk sem vill nota Pictogram myndir við gerð verkefnalista og annars stuðnings á myndrænu formi.

Hvernig er hún notuð? Í forritinu er að finna yfir 34.000 svarthvítar myndir (Pictograms) sem hægt er að velja úr. Hægt er að raða myndunum upp á einfaldan hátt í blöð eða töflur. Hægt er að bæta við texta, breyta litum og stærðum, og búa til sérsniðið efni sem hentar hverjum og einum. Þegar skipulagið er tilbúið er það prentað út eða vistað sem PDF-skjal.

Hvernig nálgast maður hana? Picto-Selector er ókeypis hugbúnaður sem hægt er að sækja á vefsíðu www.pictoselector.eu.. Forritið er fáanlegt fyrir Windows og macOS. Það er búið að þýða myndatexta á nokkur tungumál, en ekki íslensku.