Open Symbols er opin leitarvél sem safnar saman ókeypis myndatáknum á einn stað. Markmið vefsins er að auðvelda fólki með tal- og tjáskiptaskerðingu að finna myndir sem geta stutt við tjáningu og samskipti. Lausnin nýtist öllum sem útbúa myndrænan stuðning eða tjáskiptalausnir, sérstaklega aðstandendum, kennurum og talmeinafræðingum.
Hvernig er það notað? Notendur leita að ákveðnum hugtökum eða hlutum á síðunni. Þar sem leitarvélin tengist mörgum ólíkum gagnabönkum um allan heim er hægt að velja úr mörgum gerðum tákna, til dæmis úr þekktum söfnum eins og ARASAAC og Mulberry. Flest hugtökin eru skráð á ensku. Þegar rétta táknið er fundið er því hlaðið niður á tölvu eða snjalltæki. Myndirnar má svo nota í tjáskiptatöflur, námsgögn, smáforrit eða tölvuleiki.
Hvernig nálgast maður lausnina? Open Symbols er veflausn sem opin er öllum í vafra á tölvum og snjalltækjum. Það kostar ekkert að nota vefinn og öll táknin eru með opnum leyfum. Það þýðir að notendur mega nota þauog deila áfram án endurgjalds. Ekki þarf að stofna aðgang til að nota síðuna. Hana má nálgast beint á Open Symbols.
