Til eru margar vefsíður þar sem hægt er að ná í myndir til að nota í tjáskiptalausnir og myndrænt skipulag. Hér má finna dæmi um slíkt.
Hér eru tenglar á hinar ýmsu vefsíður með upplýsingar um myndræna tákna-banka
- Boardmaker (PCS myndir)
Mjög víðtækur táknabanki og öflugt forrit fyrir tjáskiptaborð. Hægt að deila borðum á Boardmaker Community. 60 daga prufutími en annars selt í ársáskrift. Sjá nánar á vefsíðu Öryggismiðstöðvar (umboðsaðili).
- Global symbols https://globalsymbols.com/?locale=en
Bæði upplýsingar um myndabanka og hægt að búa til tjáskiptaspjöld. Frítt og án skráningar
Sænsk síða, þarfnast skráningar en frítt.
- Open Symbol https://www.opensymbols.org/
Upplýsingar um nokkra myndabanka og hægt að leita að myndum. Frítt og án skráningar
- Lesson Pix https://lessonpix.com/
Myndabanki og hægt að búa til tjáskiptaspjöld. Frír prufuaðgangur en annars árgjald.
Myndabanki og hægt að búa til tjáskiptaspjöld. Frítt og án skráningar
- Picto Selector https://www.pictoselector.eu/
Myndabanki (svart-hvítar Pictograms myndir) og hægt að útbúa tjáskiptaspjöld ef maður hleður niður forriti. Frítt
- Connectability.ca https://connectability.ca/visuals-engine/
Hægt að útbúa einföld tjáskiptaspjöld. Frítt og án skráningar
- Coughdrop https://www.mycoughdrop.com/ – Tjáskiptaforrit sem hægt er að keyra í öppum og í vafra.
- Weave Chat https://www.weavechat.com/ – Frítt tjáskiptaforrit sem hægt er að keyra á símum og spjaldtölvum