Markmið:
Málstaður er vefsíða í eigu Miðeindar sem hýsir fimm snjallar máltæknilausnir. Markmiðið er að styðja við íslenska málnotendur og auðvelda vinnu með texta og tal í daglegu lífi og starfi. Einnig er þar að finna Netskrafl og daglega krossgátuþraut.
Hverjum nýtist Málstaður?
Málstaður nýtist öllum sem skrifa, þýða eða vinna með upplýsingar á íslensku. Lausnirnar henta sérstaklega vel fyrir nemendur, og þá aðra sem vinna mikið með texta, bæði lestur og ritun.
Í hvað nýtist Málstaður?
Innan Málstaðar er hægt að velja um fimm mismunandi forrit:
- Málfríður: Yfirlesari sem lagfærir málfar og stafsetningu. Hún getur einnig tekið saman aðalatriði úr löngum textum. Hér er einnig hægt að nýta talgreiningu með því að smella á táknmynd af hljóðnema og taka upp tal sem síðan er breytt í texta.
- Hreimur: Talgreining sem breytir hljóði í texta. Frábært til að rita niður upptökur eða fá samantekt úr hljóðskrám.
- Erlendur: Þýðingarvél sem þýðir á milli íslensku og annarra tungumála. Hann tekur mið af íslensku samhengi og menningu.
- Lísa: Býður upp á ljóslestur (OCR) á skjölum og myndum (PDF, JPG og PNG) og breytir þeim í stafrænan texta
- Snara: Safn rafrænna orðabóka á mörgum tungumálum.
Hvernig nálgast maður Málstað?
Hægt er að nálgast lausnirnar á vefsvæði Málstaðar. Boðið er upp á ókeypis aðgang sem takmarkast við litla notkun, en með því að kaupa áskrift fæst fullur aðgangur að öllum tólunum.

Smelltu á myndina til að opna heimasíðu Málstaðs