Markmið og gagnsemi Sérhæfð lyklaborð eru hönnuð fyrir fólk sem á erfitt með að nota venjuleg lyklaborð vegna hreyfiskerðingar, sjónskerðingar eða námsörðugleika. Markmiðið er að gera tölvunotkun auðveldari, auka nákvæmni og draga úr þreytu við skriftir.
Hvernig eru þau notuð? Sérhæfð lyklaborð bjóða upp á mismunandi leiðir til að auðvelda tölvuvinnu:
- Stór lyklaborð: Hafa stærri takka sem gott er að hitta á ef fínhreyfingar eru skertar.
- Lítil lyklaborð: Henta þeim sem hafa lítið hreyfisvið og þurfa að hafa alla takka innan seilingar án þess að teygja sig mikið.
- Lyklaborð með litakóðum: Takkarnir eru í mismunandi litum (t.d. sérhljóðar í einum lit og samhljóðar í öðrum) sem hjálpar fólki með lestrarerfiðleika eða þroskahömlun að átta sig á skipulaginu.
- Háskerpulyklaborð: Með stórum stöfum og miklum litamun (t.d. gulir stafir á svörtum bakgrunni) sem hentar sjónskertum.
Tengimöguleikar Flest sérhæfð lyklaborð tengjast við tölvur með USB-snúru, sem tryggir stöðuga tengingu. Einnig eru til Bluetooth-lyklaborð sem eru þráðlaus og henta vel með spjaldtölvum (iPad) og snjallsímum, þar sem auðveldara er að færa tækin til án þess að snúrur trufli.
Úrval og aukabúnaður Til eru margar gerðir lyklaborða og leiðir til að aðlaga þau að þörfum hvers og eins:
- Lyklagrindur: Gegnsæjar plastplötur sem settar eru ofan á lyklaborðið. Þær koma í veg fyrir að ýtt sé á marga takka í einu og gera notandanum kleift að hvíla hendurnar á lyklaborðinu án þess að virkja takkana óvart.
- Sérstakar stillingar í tölvunni: Hægt er að breyta því hvernig tölvan bregst við lyklaborðinu. í stillingum sem heita „Valkostir fyrir aðgengi“. Algengar stillingar eru:
- Festilyklar (Sticky Keys): Þessi stilling gerir notanda kleift að ýta á einn takka í einu í stað þess að halda tveimur niðri samtímis (t.d. til að gera stóran staf með því að ýta fyrst á Shift og svo á bókstafinn).
- Skiptilyklar (Toggle Keys): Tölvan gefur hljóðmerki þegar læst er á hástafi eða númeraborð.
- Síaðir lyklar (Filter Keys): Þetta er safn stillinga sem gerir lyklaborðið „þolinmóðara“. Hér má finna:
- Treglykla (Slow Keys): Þar sem halda þarf takka niðri í smá stund til að hann virki. Það hjálpar ef notandi á það til að ýta óvart á ranga takka á lyklaborðinu.
- Skopplykla (Bounce Keys): Sem kemur í veg fyrir að sami bókstafur skrifist mörgum sinnum ef fingurinn hoppar á takkanum.
Hvernig nálgast maður lausnina? Hér á landi er enginn sem selur sérhæfð lyklaborð en hægt er að ræða við Öryggismiðstöðina um að sérpanta. Einnig er hægt að panta fjölbreyttan búnað erlendis frá, til dæmis í gegnum Inclusve Technology.
Styrkir:
- Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða sérhæfð lyklaborð ef þörfin er metin mikil.
- Við umsókn þarf að liggja fyrir mat iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfara, sem síðan senda inn umsóknina í gegnum Gagnagátt SÍ.
TMF veitir ráðgjöf um lyklaborð og á nokkrar tegundir sem hægt er að prófa.