Markmið: Ljóslestur (OCR) breytir prentuðum eða handskrifuðum texta á myndum og skönnuðum skjölum yfir í stafrænan texta. Við það verður textinn leitartækur og hægt er að afrita hann eða breyta honum í tölvu eða snjallsíma.
Hverjum nýtist lausnin? Öllum sem vinna með pappírsskjöl á stafrænu formi. Lausnin er sérstaklega mikilvæg fyrir fólk með lestrarerfiðleika eða sjónskerðingu, því þegar textinn er orðinn stafrænn er hægt að láta talgervil lesa hann upphátt.
Hvernig er hún notuð?
- Í snjallsímum: Beindu myndavélinni að texta eða notaðu öpp eins og Microsoft Lens og Google Keep til að afrita textann beint.
- Í tölvum: Hladdu skönnuðu skjali upp í Google Docs eða notaðu Adobe Acrobat til að ljóslesa það.
- Hlustun: Þegar textinn er tilbúinn má nota talgervla eins og Stein frá Símarómi, Microsoft raddirnar Guðrúnu og Gunnar, eða Read Aloud viðbótina í vöfrum (Karl og Dóra).
Hvernig er hún nálguð? Ljóslestrarvirkni er innbyggð og ókeypis í flestum nýlegum snjallsímum og algengum tölvukerfum. Símaróm má sækja í App Store og Google Play.