Kúlumýs (e. Trackball) getur verið góð lausn fyrir þá sem eiga erfitt með að nota hefðbundna tölvumús. Ólíkt venjulegri mús stendur kúlumúsin kyrr á borðinu á meðan notandinn stýrir bendlinum með því að snúa kúlunni sjálfri. Þetta veitir aukinn stöðugleika og nákvæmni.
Hverjum nýtist kúlumús best?
Kúlumýs henta einkar vel fólki sem glímir við:
- Skerta fínhreyfingu eða skjálfta í höndum.
- Vöðvarýrnun eða máttleysi, þar sem ekki þarf að hreyfa handlegginn til að færa bendilinn.
- Verki í liðum (t.d. vegna gigtar), þar sem höndin hvílir í náttúrulegri stöðu.
- Úthaldsleysi, þar sem dregið er úr álagi á úlnlið og öxl.
Hvernig virkar hún?
Í stað þess að renna músinni yfir borðið, rúllar notandinn stórri kúlu með lófanum eða fingrunum.
- Skýrir hnappar: Smelluhnappar eru stórir og afmarkaðir sem lágmarkar hættuna á að smellt sé óvart.
- Aukinn stöðugleiki: Þar sem tækið hreyfist ekki er mun auðveldara að halda bendlinum kyrrum á skjánum á meðan smellt er.
Hvar fæst hún?
Kúlumýs eru til í mörgum stærðum og gerðum. Á sölusíðum Inclusive Technology má finna gott úrval af slíkum tækjum.
Hægt er að sækja um styrk eða niðurgreiðslu fyrir tölvubúnað hjá Sjúkratryggingum Íslands ef mat sjúkraþjálfara eða iðjuþjálfa styður þá umsókn. Í sumum tilvikum er það skólayfirvöld, sveitarfélag eða atvinnurekandi sem sjáum að útvega viðeigandi búnað.
