Fara beint í efni

HeimTæknilausnirÓhefðbundnar tjáskiptaleiðir

GoTalk Now tjáskiptaforrit

ForritTjáning

Markmið og notendahópur:

GoTalk Now er myndrænt tjáskiptaforrit hannað fyrir iPad. Það er mjög sveigjanlegt og hentar einstaklingum sem þurfa einfalda eða sérsniðna uppsetningu á orðaforða. Forritið býður upp á fjölbreytta möguleika:

  • Sveigjanlegur síðufjöldi: Hægt er að stilla fjölda tákna á hverri síðu, frá 1 og upp í 49 myndir.
  • Aðstæðumyndir: Hægt er að nota mynd af aðstæðum með „heitum reitum“ sem tala. Einnig hægt að blanda saman myndatáknum og aðstæðumynd.
  • Rödd og hljóð: Hægt er að nota íslenskan talgervil (Símaróm) eða taka upp eigin skilaboð beint í forritið.
  • Myndir: Þótt innbyggt myndasafn sé takmarkað er auðvelt að nota eigin ljósmyndir eða sækja myndir af netinu.

Tæki og útgáfur Forritið er eingöngu gert fyrir iOS-stýrikerfið (iPad). Það kemur í tveimur útgáfum:

  • GoTalk Now FREE: Ókeypis útgáfa sem leyfir að hámarki þrjár síður. Góð leið til að prófa forritið.
  • Full útgáfa: Keypt útgáfa með ótakmörkuðum síðufjölda og aðgangi að tilbúnu efni sem hægt er að sækja beint í forritið.

Hvernig nálgast ég GoTalk Now?

  • Forritið er keypt og sótt í gegnum App Store.
  • Einstaklingar með mikla málhömlun geta sótt um niðurgreiðslu fyrir fullri útgáfu til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Fagaðili, svo sem talmeinafræðingur eða iðjuþjálfi, þarf að leggja mat á þörfina, senda umsókn í gegnum vef SÍ og bera ábyrgð á eftirfylgd með notandanum.
Lógó fyrir GoTalk Now