Global Symbols er ókeypis leitarvél sem nýtist fólki sem þarf að finna eða útbúa myndrænt tjáskiptaefni. Lausnin nýtist best einstaklingum með tjáskiptaskerðingu, aðstandendum þeirra, kennurum og fagaðilum sem vantar fjölbreyttar táknmyndir fyrir tjáskiptaspjöld.
Hvernig er það notað? Vefsíðan leitar samtímis í nokkrum ókeypis myndabönkum, svo sem ARASAAC og Open Symbols. Á síðunni er einfalt að hanna eigin tjáskiptaspjöld, hlaða þeim niður í tölvu eða prenta þau út. Vefurinn sjálfur er í boði á nokkrum tungumálum. Flestar táknmyndirnar eru skráðar á ensku en einnig má finna myndasöfn á tungumálum eins og þýsku og úrdú. Notendur geta hlaðið inn eigin myndum og þýtt myndatexta yfir á íslensku til að sérsníða efnið.
Hvernig nálgast maður lausnina? Myndabankinn er veflausn sem opin er öllum í vafra á tölvum og snjalltækjum. Aðgangur að kerfinu er ókeypis en notendur þurfa að stofna aðgang og skrá sig inn á vefsíðu Global Symbols.
