Fara beint í efni

HeimTæknilausnirMyndrænt skipulag

Táknmyndir – Global Symbols

ForritHreyfingTjáning

Á vefsíðu Global Symbols (sjá hér) er leitarvél sem leitar í nokkrum fríum myndabönkum eins og ARASAAC og AAC Image library. Á síðunni er hægt að búa til tjáskiptaspjöld til að hlaða niður á tölvu og til útprentunar. Síðan er á ýmsum tungumálum en flestar táknmyndir eru skráðar á ensku þó einnig séu þarna myndasöfn á öðrum tungumálum s.s. þýsku og urdu. Hægt er að hlaða inn eigin myndum og þýða myndatexta yfir á íslensku. Aðgangur að síðunni er ókeypis en krefst skráningar.