Flýtiorðasöfn geta sparað mikinn tíma og minnkað líkamlegt álag við ritun á snjallsíma. Hér er farið yfir hvernig þú býrð til þín eigin flýtiorð og hvernig þú eyðir þeim aftur ef þörf krefur.
Hvernig á að setja upp flýtiorð?
Þegar þú býrð til flýtiorð velur þú stutta skammstöfun (t.d. mkv) og ákveður hvaða texti á að koma í staðinn (t.d. Með kærri kveðju). Í hvert sinn sem þú skrifar skammstöfunina og ýtir á bilstöngina breytist hún í fulla setningu.
Í iPhone og iPad (iOS):
Búa til
- Opnaðu Settings -> General.
- Veldu Keyboard -> Text Replacement.
- Ýttu á + merkið efst í hægra horninu.
- Skrifaðu langa textann í reitinn Phrase og stuttu skammstöfunina í reitinn Shortcut.
- Smelltu á Save.
ATH. Þessi flýtiorð samstillast sjálfkrafa yfir á önnur tæki (t.d. Mac-tölvur og iPad) sem eru tengd við sama Apple ID eða iCloud-aðgang.
Eyða:
- Í listanum yfir textaskipti rennir þú fingri frá hægri til vinstri yfir orðið og velur Delete (eða ýtir á Edit efst).
Í Android tækjum:
Búa til
- Opnaðu Stillingar (Settings) -> Almenn stjórnun (System) ->
- Smelltu á Persónuleg orðabók (Personal dictionary)
- Ýttu á + merkið til að bæta við nýju orði og flýtiorði.
ATH. Í Android geta heiti valmynda verið örlítið breytileg eftir framleiðendum (t.d. Samsung Galaxy notar oft Stillingar > Almenn stjórnun > Stillingar Samsung-lyklaborðs > Textaflýtileiðir).
Eyða:
- Opnaðu orðið í persónulegu orðabókinni og ýttu á ruslafötu-táknið efst í hægra horninu.