ElevenLabs er gervigreindartól sem framleiðir hágæða talgervla og býður upp á gott líkan fyrir íslenska tungu.
Markmið og notkun
Eleven Labs gerir notendum kleift að búa til fjölbreyttar raddir eða klóna eigin rödd út frá raddsýni. Ef notandi hefur þegar misst eða breyst í röddinni, má nota gamlar hljóðupptökur eða myndbönd til að endurgera hana. Eftir að röddin er tilbúin er hægt að tengja hana við önnur forrit með notendalykli (API lykli), til dæmis tjáskiptaforrit eins og Speech Assistant.
Hverjum nýtist lausnin?
Tæknin nýtist fólki sem þarf á taltækni að halda til tjáskipta, sérstaklega þeim sem eiga á hættu að missa eða hafa misst eigin rödd vegna sjúkdóma eða slysa. Með þessu móti getur fólk varðveitt rödd sína og persónuleika.
Aðgengi og umsókn
Almennt greiðist mánaðarleg áskrift fyrir þjónustuna. Einstaklingar með varanlegan raddmissi geta hins vegar sótt um ókeypis 5 ára leyfi (Pro license) í gegnum samfélagsverkefni ElevenLabs (Impact Program).