Fara beint í efni

Einföld tjáskiptatæki eru rafknúin tæki, oft með hnöppum eða reitum, sem spila hljóð þegar ýtt er á þau. Ólíkt tjáskiptatölvum þá er talið sett inn með upptöku en ekki raddgervingu og myndirnar eru útprentaðar en ekki kallaðar fram á skjá.

Hvernig virka þau?

  • Röddin: Aðstandandi, kennari eða jafnaldri tekur upp skilaboðin í tækið. Það gefur möguleika á persónulegum blæ og eðlilegum framburði.
  • Myndræn vísun: Yfir hnappana er sett pappírsyfirlag (e. overlay) með myndum eða táknum sem passa við hljóðupptökuna.
  • Lög (Levels): Mörg tæki bjóða upp á fleiri en eitt „lag“. Hægt er að stilla tækið fyrir mismunandi pappírsyfirlag og skipta auðveldlega á milli laga.

Hvenær henta þau? Þessi tæki eru oft einfaldari og ódýrari en tölvur og henta vel til að þjálfa grunnorðaforða, orsök og afleiðingu, eða sem viðbót við aðrar tjáskiptaleiðir.

Dæmi: GoTalk Lite, QuickTalker og talandi rofar (einn stór hnappur).