CoughDrop er öflugt og sveigjanlegt tjáskiptaforrit sem hannað er til að gefa fólki með tal- og tjáskiptaskerðingu skýra rödd. Forritið hentar breiðum hópi notenda, allt frá börnum í fyrstu tjáskiptaskrefunum til fullorðinna með flóknari þarfir, sem og fyrir aðstandendur þeirra og fagaðila.
Hvernig er það notað? Forritið byggir á skýatækni, sem þýðir að táknmyndir og breytingar uppfærast samstundis á milli tækja. Ekki er tilbúin íslensk útgáfa af forritinu, en kerfið er einstaklega opið. Það gerir fólki auðvelt fyrir að smíða, þýða og sérsníða eigin tjáskiptaborð frá grunni á opinberu vefsíðunni CoughDrop. Þá býður kerfið upp á ítarlega tölfræði sem sýnir hvernig tjáskiptaborðin nýtast í daglegu lífi.
Hvernig nálgast maður forritið? CoughDrop er veflausn sem virkar á nánast öllum tækjum, þar á meðal í snjallsímum, spjaldtölvum og tölvum (iOS, Android, Windows og Mac). Hægt er að hlaða því niður í app-verslunum eða nota það í vafra. Einstaklingar fá tveggja mánaða ókeypis reynslutíma á vefsíðu CoughDrop en kaupa síðan leyfi. Fagaðilar og kennarar geta hins vegar fengið ókeypis aðgang til að útbúa tjáskiptaborð og fylgjast með tölfræði sinna skjólstæðinga.
